Fréttir
  • Herjólfur

Herjólfur siglir á Þorlákshöfn fram yfir páska

tilkynning frá Eimskipafélagi Íslands og Vegagerðinni

12.4.2011

Í ljósi veðurs og sjólags við suðurströnd Íslands frá því í janúar á þessu ári, hafa mun fleiri ferðir til og frá Landeyjahöfn fallið niður en fyrirfram var reiknað með. Oft hafa liðið vikur og nú mánuðir á milli þess sem hægt er að nýta hafnarmannvirkið fyrir siglingar Herjólfs. Þetta ástand hefur verið óviðunandi fyrir íbúa Vestmannaeyja, farþega Herjólfs og aðra hagsmunaaðila.

Í frétt frá Siglingastofnun 11.4. sl. kemur fram að framundan séu miklir umhleypingar og miðað við ölduspá verði ölduhæðin yfir 2 m fram til 20. apríl . Jafnframt segir að það þurfi fáeina daga við góðar aðstæður til að opna höfnina eftir að veður gengur niður. Því hafa  Eimskip og Vegagerðin tekið þá ákvörðun að ekki verði teknar upp áætlanasiglingar til og frá Landeyjahöfn fyrr en hægt verður að sigla í höfnina með nokkurri vissu til lengri tíma. 

Mikilvægt er að vissu og öryggis gæti í samgöngum á milli lands og Eyja, ekki síst á dögunum í kringum páska þegar margir landsmenn eru á faraldsfæti. Brýnt er, að farþegar hafi vissu fyrir því hvert verður siglt og hvenær. Því þykir nauðsynlegt að tilkynna, að Þorlákshöfn muni þjóna Herjólfi þangað til Landeyjahöfn verður nothæf. Ekki er nú útlit fyrir, að það verði fyrr en eftir páska og munu bókanir í skipið taka mið af því.

Tekið skal fram að endurmat á öldu-, veður- og dýpkunarspám fer reglulega fram á þessum tíma. Gefist færi á að opna höfnina fyrr verður það gert. Þangað til verða allar ferðir farnar í Þorlákshöfn samkvæmt áætlun og viðskiptavinum bent á að einungis er bókað í ferðir til Þorlákshafnar þar til annað verður ákveðið.