Fréttir
  • Umferðin frá 2005

Gífurlegur samdráttur í umferð 2010

umferðin í nóvember sú sama og árið 2005

2.12.2010

Miðað við umferðina í nóvembermánuði á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum stefnir í mesta samdrátt í umferð á milli ár frá því heildarakstur var fyrst reiknaður árið 1975. Umferðin í nóvember dróst mjög mikið saman miðað við nóvembermánuð í fyrra og er umferðin nánast sú sama og hún var árið 2005.

Þrátt fyrir að umferðin í október hafi verið meiri en fyrir ári stefnir í að umferðin dragist saman um ríflega fjögur prósent, en hingað til hefur samdráttur verið mjög sjaldgjæfur á milli ára og langmestur 2,5 prósent á milli áranna 2007 og 2008.

Talnaefni, línurit og gröf.

Í síðustu fréttum, frá 16 völdum talningastöðum á Hringvegi, sagði Vegagerðin frá óvæntri 3,3% aukingu á akstri milli októbermánaða 2009 og 2010 þar sem líkleg skýring var talin hagstætt veðurfar. Jafnframt var þess getið að reynslan sýndi að ef október væri umferðarmikill þá væri það ekki endilega ávísun á stóran nóvembermánuð heldur þvert á mót og jafnan líkur til þess að nóvember yrði talsvert minni. Því mætti alveg eins eiga von á því, nú í ár.

Þegar horft er á línurit er sýnir ,,Heildarakstur í hverjum mánuði" þá hefur það nú einmitt gerst að umferðin hefur snarminnkað í nýliðnum nóvember. En Vegagerðin átti þó ekki von á slíkum samdrætti sem raunin varð.

Um mikinn samdrátt er að ræða á öllum landssvæðum þó mest á Suðurlandi eða 9,3% og á Austurlandi eða 9,2%. Norðurland fylgir þar fast í kjölfarið með 8,1% samdrátt, næst kemur Vesturland með 5,8% samdrátt. Þótt umferðin dragist minnst saman á höfuðborgarsvæðinu milli nóvembermánaða er samdrátturinn í akstri samt mikill eða 4,4%.

Aksturinn hefur dregist það mikið saman í nóvember árið 2010 að hann var einungis 0,5% meiri en árið 2005, sem er sá minnsti, á því árabili sem birt er.

Þegar horft er til þess sem af er árinu, borið saman við árið 2009, þá er ljóst að nú stefnir í mesta samdrátt milli ára, frá því heildarakstur var fyrst reiknaður 1975, eða 4,2%. Samdrátturinn milli áranna 2009 og 2010 er næstum tvöfalt meiri en sá er nærst kemur en hann varð á milli áranna 2007 og 2008, eða 2,5% fyrir sama tímabil. Það gerist ekki oft að umferð dregst saman milli ára því þótti 2,5% samdráttur vera mikill. Ljóst er að ný viðmið verða sett nú í ár.

Þessi mikli samdráttur nú virðist fyrst og fremst vera borinn uppi af gríðarlegum samdrætti á akstri um Hringveg á Suðurlandi en þar hefur hann dregist saman um 8,2%. Minnst hefur aksturinn, aftur á móti, dregist saman á Norðurlandi frá áramótum eða 0,9%.

Varðandi skýringar á þessum mikla samdrætti á Suðurlandi, fyrir utan sjálfa kreppuna mætti velta upp öðrum áhrifaþáttum eins og eldgosi, flóðum og sýkingum í hrossum, sem færa má fyrir því rök að hafi haft aukalega áhrif á Suðurland umfram önnur svæði

 

Samanburðartafla

 

Í fyrsta sinn frá því að Vegagerðin hóf að birta þessar tölur er nú gerð tilraun til að spá fyrir um akstur í heild og á einstaka talningastöðum til ársloka. (Sjá einnig meðfylgjandi töflur og línurit).

Þar sem nú er einungis einn mánður eftir af árinu, gæti það ekki virst vera djörf tilraun að segja til um umferð í næsta mánuði, en umferðin á íslenskum vegum er gríðarlega sveiflukennd og erfitt að spá fyrir um tímabil sem er ekki lengra einn mánuður. Það mun því flokkast undir nokkuð djarfa tilraun þegar við munum reyna okkur við allt næsta ár að janúar liðnum. Slík spá verður ekki mjög nákvæm og óvíst hvort hún verður birt fyrr en að 4 -6 mánuðir eru liðnir af árinu, þá ættum við að vera nokkuð örugg um hvert stefnir.

Þegar spátölur fyrir desember eru teknar með þá sést að þær breyta í engu um þann heildar samdrátt sem fram kemur í samantektartöflunni.

Eins sést af línuriti yfir ,,Uppsafnaðan akstur" stefnir í að heildarumferðin verði nú rétt ofan við heildar akstur ársins 2006 og af línuriti um ,,Heildarakstur í hverjum mánuði" og af töflu 1, sést að við spáum að desember árið 2010 verði um 0,6% undir des. 2006.

 

Ath. umferðartölur fyrir árið 2010 eru órýndar, gætu því tekið breytingum við nánari skoðun Vegagerðarinnar þegar árið er gert upp.

Frekari upplýsingar gefur Friðleifur I Brynjarsson í fib@vegagerdin.is eða í síma 522-1817