Fréttir
  • Herjólfur

Siglt næstu daga til Þorlákshafnar

bilun í dæluskipi og höfnin lokuð

8.9.2010

Að mati Siglingastofnunar verður ekki hægt að opna Landeyjahöfn næstu daga vegna gosefnanna sem borist hafa með þrálátri austanátt í mynni nýju hafnarinnar. Svo óheppilega vill til að bilanir hafa tafið dæluskip sem liggur í höfn í Reykjavík en ráðgert er að það sigli í Landeyjahöfn á föstudag.

Ákveðið hefur verið að Herjólfur sigli því næstu daga til Þorlákshafnar eða þar til Landeyjahöfn opnar. Unnið er að áætlun fyrir næstu daga og verður hún birt í fyrramálið en farnar verða tvær ferðir á dag.