Fréttir
  • Markarfljot 16. april
  • Markarfljot 16. april
  • markarfljót loftmynd 14. apríl

Vinna við viðgerð á Hringveginum við Markarfljót langt komin

styttist í að hægt verði að opna veginn

18.4.2010

Vinna síðustu daga við viðgerðina á veginum og varnargörðum hefur gengið vel og styttist í að hægt verði að flytja neyðarakstur af gömlu brúnni yfir á þá nýju og þar með um Hringveginn. Vonast er til að það geti orðið í kvöld, 18. apríl. Þótt það verði gert verður ekki opnað fyrir almenna umferð fyrr en almannavarnir og lögregla heimila það, sem er háð hættuástandi og aðstæðum á hverjum tíma. Ekki verður að sinni gengið endanlega frá yfirborði vegarins og akstur um þennan kafla þarfnast sérstakrar varúðar.

Með opnun Hringvegarins um Markarfljót verður aflétt þungatakmörkunum sem nú eru vegna gömlu brúarinnar, en ítrekað skal að allir flutningar verða eins og önnur umferð háð heimild vettvangsstjórnar á svæðinu .

Tilkynnt verður hér á vef Vegagerðarinnar þegar viðgerð er lokið og eins þegar að því kemur að opnað verður fyrir almenna umferð.

.

.

.

markarfljót loftmynd 14. apríl