Fréttir
  • Viðurkenning fagurt mannvirki

Göngubrýr fegurstar

brýrnar yfir Hringbraut og Njarðargötu fá viðurkenningu

23.10.2009

Vegagerðin hefur um nokkurt skeið veitt viðurkenningu fyrir gerð og frágang mannvirkja.

Í dag var þessi viðurkenning veitt í þriðja sinn, fyrir verk sem lokið var við á árunum 2005-2007. Til álita koma fullgerð umferðarmannvirki og landmótunarverkefni sem lokið hefur verið við á þessum árabili.

Mannvirkið sem hlaut viðurkenninguna að þessu sinni er: Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut

Í umsögn dómnefndar segir:
Þarna fara saman falleg mannvirki og góður frágangur. Hönnun er vönduð og mikið lagt upp úr mjúkum línum. Frágangur er allur hinn vandaðasti, falleg og vel unnin hellulögn og slétt brúaargólf. Brýrnar eru í senn svipmikil mannvirki og sérstök, en falla um leið vel að umhverfi sínu og þjóna vel tilgangi sínum sem tenging Vatnsmýrar og Háskólaumhverfis við Tjörnina og miðbæ Reykjavíkur.

Verkið var samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar. Verkumsjón fyrir hönd Vegagerðarinnar var í höndum deildar um samstarfsverkefni hjá Suðvestursvæði Vegagerðarinnar. Verktaki var Háfell ehf. og Eykt ehf. Um hönnun sáu Línuhönnun (nú Efla hf.) og Stúdíó Granda ehf. Um eftirlit sá Almenna Verkfræðistofan hf.

Fyrri viðurkenningar:
Fyrir gerð og frágang mannvirkis sem lokið var við á árunum 1999-2001 hlaut Vatnaleið á Snæfellsnesi viðurkenninguna og fyrir gerð og frágang mannvirkis sem lokið var við á árunum 2002-2004 hlaut Norðausturvegur á Tjörnesi og áningastaður á Teigsbjargi viðurkenninguna.


Viðurkenning afhent

Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, afhendir Baldvini Einarssyni og Steve Christer viðurkenninguna.

Göngubrýr

Göngubrú yfir Hringbraut

Göngubrýr

Göngubrýr yfir Hringbraut og Njarðargötu