Fréttir
Hreinn Haraldsson skipaður vegamálastjóri
Skipað er í embættið til fimm ára
Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað Hrein Haraldsson vegamálastjóra. Skipað er í embættið til fimm ára.
Embætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Hreinn var eini umsækjandinn.
Samgönguráðherra afhenti Hreini skipunarbréf í dag á skrifstofu ráðuneytisins.
Vegamálastjóri veitir Vegagerðinni forstöðu. Helstu verkefni Vegagerðarinnar skiptast í framkvæmdir í vegamálum, umsjón með rannsóknum og þróun á sviði vegamála auk stjórnsýslu og eftirlits.