Fréttir
Suðurlandsvegur - Tvöföldun frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss
Tillaga að matsáætlun
Tillaga að matsáætlun fyrir Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnunar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum. EFLA verkfræðistofa verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmdaraðila. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar fyrir 4. mars 2009.