Dagverðareyrarvegur (816) - Hringvegur-Helluland
Kynning framkvæmda
Vegagerðin fyrirhugar að endurbæta um 4,5 km langan vegarkafla á Dagverðareyrarvegi (816) milli Hringvegar og Hellulands í Hörgárbyggð í Eyjafirði. Núverandi vegur er burðarlítill malarvegur og miða endurbæturnar að því að styrkja hann og leggja á hann bundið slitlag.
Endurbyggður vegur verður af vegtegund C2, sem er 6,5 m breiður vegur. Hönnunarhraði er 80-90 km/klst nema fyrstu 1,5 km næst Hringvegi þar sem hönnunarhraði verður 70 km/klst.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist vorið 2008 og þeim verði að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2008.
Framkvæmdin telst ekki matskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Vegagerðin telur að framkvæmdin hafi fremur lítil umhverfisáhrif nema hvað varðar bætt umferðaröryggi vegfarenda.