Slippurinn Akureyri með lægsta tilboðið
tilboð í lokaendurbætur Grímseyjarferju opnuð
Opnuð voru tilboð í lokaendurbætur janúar Sæfara í húsakynnum Vegagerðarinnar föstudaginn 4. janúar. Um var að ræða óformlegt lokað útboð eða verðkönnun.
Fjórar stöðvar hér á landi sem geta tekið ferjuna í slipp áttu kost á að gera tilboð og barst tilboð frá þeim öllum. Lægsta tilboðið átti Slippurinn Akureyri en aðrir buðu hærra.
Tilboðin:
Slippurinn Akureyri 12,966,300,- kr
Skipasmíðastöð Njarðvíkur 22,404,000,- kr
Vélsmiðja Orms og Víglundar 22,881,610,- kr
Stálsmiðjan 26,995,100,- kr
Gengið verður til viðræðna við Slippinn Akureyri um framkvæmd verksins en í því felast nokkrir verkþættir svo sem að smíða dyr á stjórnborðssíðu sem verður aðalinngangur í ferjuna sem gerir hreyfihömluðu auðveldara um vik. Samskonar dyr verða settar á bakborðshliðina og verður neyðarútgangur. Þá verður skipt út um 22 fermetrum af stáli á byrðingi skipsins sem auðveldar og bætir klössun skipsins. Komið verður fyrir kælingu í efri flutningalestinni vegna fiskflutninga, og salernum verður breytt þannig að þau nýtist hreyfihömluðum á betri hátt en ella, auk nokkurra fleiri smærri verka.
Gert er ráð fyrir að vinna við skipið geti hafist á Akureyri 15. janúar og áætlaður verktími er þrjár vikur.