Fréttir
  • Bakkafjöruhöfn - Kort

Tillaga að matsáætlun fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og efnistöku

frestur til að skila athugasemdum til 19. október 2007

3.10.2007

Bakkafjöruhöfn, Bakkafjöruvegur og efnistaka

Tillaga að matsáætlun fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar (254) og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalandsheiði og úr Markarfljótsaurum er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun.

Í matsáætlun er gerð grein fyrir:

■ Fyrirhuguðum framkvæmdum.

■ Umhverfisþáttum sem fjallað verður um í frummatsskýrslu.

■ Umfjöllunarefni frummatsskýrslu, og rannsóknum sem ráðast á í vegna mats á umhverfisáhrifum.

Frestur til að skila inn athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar er 19. október 2007.

Hægt er að nálgast matsáætlunina með því að smella á krækjuna hér fyrir neðan. VSÓ Ráðgjöf vinnur að mati á umhverfisáhrifum við verkefnið.

Tillagan að matsáætlun