Fréttir
  • Umferðarkönnun

Umferðarkönnun Öxnadalsheiði

fimmtudag og laugardag

19.7.2007

Vegagerðin mun standa fyrir umferðarkönnun á Hringvegi um Öxnadalsheiði, fimmtudaginn 19. júlí og laugardaginn 21. júlí 2007. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.

Tilgangur með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð á milli staða og munu niðurstöður m.a. nýtast við áætlanagerð.

Framkvæmd umferðarkönnunarinnar verður með þeim hætti að allar bifreiðir sem koma að könnunarstaðnum, verða stöðvaðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga.

Vonast er til að vegfarendur sem leið eiga um Öxnadalsheiði taki starfsmönnum Vegagerðarinnar vel og jafnframt er beðist velvirðingar á töfum sem kunna að hljótast af þessum sökum.