Fréttir
  • Rannsóknarráðstefna 2006

Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2006 auglýst

Verður haldin föstudaginn 3. nóvember 2006 á Hótel Nordica

30.10.2006

Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 3. nóvember 2006 á Hótel Nordica í ráðstefnusal á fyrstu hæð.

Þetta er í fimmta sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin. Kveðið er á í vegalögum að 1% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.