Fréttir
  • Víkurskarð

Umferðarkönnun í Víkurskarði

14.9.2006

Fimmtudagana 21. júlí, 13. október 2005, laugardagana 23. júlí og 15. október 2005 var umferð könnuð á Hringvegi um Víkurskarð, en sá staður tilheyrir Norðaustursvæði Vegagerðarinnar. Könnunin stóð yfir frá kl. 08:00 – 23:00 alla dagana.

Könnunarstaðurinn var uppi á miðju Víkurskarði n.t.t. við bílastæði efst í skarðinu.

Tilgangur með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð á milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi eystra, einnig gætu niðurstöður nýst við undirbúning hugsanlegra jarðganga í gegnum Vaðlaheiði.

Úr umferðarkönnuninni fengust m.a. upplýsingar um:

  •  Umferð milli svæða
  •  Tilgang ferðar
  •  Farþegafjölda
  •  Hlutfall þungra bifreiða
  •  Hlutfall erlendra ökumanna
  •  Búsetu ökumanna.
  •  Kyn bílstjóra.

Skýrslan í heild sinni er hér í pdf skrá:

Víkurskarð - Umferðarkönnun 21., 23.júlí, 13. og 15. október 2005, Skýrsla um verkefnið "Viðtalskönnun á þjóðvegi 1 austan Akureyrar" (Ný útgáfa 26.09.2006. gerðar hafa verið minnháttar lagfæringar á skýrslu.)