Fréttir
  • Snjómokstur að vetri

Þjónustan um áramótin

gamlársdag og nýársdag

28.12.2015

Gamlársdag og nýársdag er miðað við að þjónustu Vegagerðarinnar ljúki klukkan 14:00 en ef þannig stendur á yrði þjónustu, mokstri og slíku sinnt til u.þ.b. 15:00. Séu veðurhorfur góðar sem og  færð og ástand á vegum getur þjónustu lokið mun fyrr. Laugardaginn og sunnudaginn 2. og 3. janúar er þjónustan venjubundin og opið í síma 1777 frá 06:30 til 22.00.


Á þéttbýlissvæðum sérstaklega suðvestanlands gæti þjónustan orðið nokkuð meiri en eigi að síður yrði þjónusta í lágmarki. Þjónustan tekur mið af veðri og af umferð.