Fréttir
  • Jólakortið 2015

Þjónusta Vegagerðarinnar um jólin

aðfangadag, jóladag og annan í jólum

21.12.2015

Aðfangadag og jóladag er miðað við að þjónustu Vegagerðarinnar ljúki klukkan 14:00 en ef þannig stendur á yrði þjónustu, mokstri og slíku sinnt til u.þ.b. 15:00. Séu veðurhorfur góðar sem og  færð og ástand á vegum getur þjónustu lokið mun fyrr. Á annan í jólum er þjónustan venjubundin og opið í síma 1777 frá 06:30 til 22.00.

Á þéttbýlissvæðum sérstaklega suðvestanlands gæti þjónustan orðið nokkuð meiri en eigi að síður yrði þjónusta í lágmarki. Þjónustan tekur mið af veðri og af umferð.