Fréttir
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin eftir vikudögum

Ekkert lát á aukningu umferðar

met slegið í október

3.11.2015

Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringveginum jókst um 12,5 prósent í október og hafa aldrei fleiri mælst á ferð um Hringveginn í október. Nú stefnir í að umferðin árið 2015 verði 5,5 prósentum meiri en árið 2014 og með því verður slegið met í umferðinni. 


Aukning milli sömu mánaða 2014 og 2015
Enn eitt metið frá 2007 var slegið í nýliðnum mánuði þ.e.a.s. aldrei hafa mælst fleiri ökutæki fara um lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi í október frá því að mælingar hófust.  Umferðin jókst um 12,5% í nýliðnum október sé hann borinn saman við sama mánuð árið 2014. Gríðarleg aukning varð í umferð á öllum landssvæðum, en mest jókst umferðin um Austurland eða um tæp 36%, sem er einsdæmi. Minnst jókst umferðin um höfuðborgarsvæðið en jókst þó um rúmlega 8%, sem er langtum meiri aukning en búast má við í meðalári.


Samanburður
Aukning frá áramótum milli áranna 2014 og 2015

Nú hefur umferðin í 16 lykilsniðum á Hringveginum aukist um 5,4%, frá áramótum borið saman við sama tímabil á síðasta ári.  Þetta er nákvæmlega sama hlutfall og umferðin hafði aukist um á síðasta ári. Umferðin hefur aukist lang mest á Austurlandi eða um tæp 14% en minnst hefur aukningin orðið á og við höfuðborgarsvæðið eða um 4,2%. 

Það er eftirtektarvert að sjá hversu mikið umferðin er að aukast yfir teljarasnið á Austurlandi.  Ef vísitölurit eftir landssvæðum er skoða má sjá þessa aukningu myndrænt (sjá talnaefni). En gæta verður að því að umferðin um teljarasnið á Austurlandi er lang minnst af þessum landssvæðum og jafnframt sveiflukenndust en þessi aukning er samt sem áður eftirtektarverð því hún er talin í tugum prósenta.

Umferð eftir vikudögum
Umferð hefur aukist alla vikudaga en hlutfallslega mest á þriðjudögum eða um 7,5%.  Minnst hefur umferðin aukist á sunnudögum eða um 3,2%.

Horfur út árið 2015
Nú eru allar líkur til þess að umferðin aukist um 5,5% miðað við árið 2014 og þá um leið verði nýtt met slegið í heildarumferð um Hringveginn, eins og sjá má á vísitöluriti.

Talnaefni