Fréttir
  • Afhending viðurkenningarinnar
  • Boðið var upp á köku af þessu tilefni
  • græn skref - lógó

Fyrsta "Græna skref" Vegagerðarinnar

fyrsta af mörgum

14.10.2015

Miðstöð Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu hlaut mánudaginn 12. október viðurkenningu Grænna skrefa í ríkisrekstri frá Umhverfisstofnun. Vegagerðin er meðal fyrstu ríkisstofnana til að laga starfsemi sína að Grænum skrefum í ríkisrekstri og hefur miðstöð Vegagerðarinnar, í fjórum starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, náð fyrsta skrefi í þeirri aðlögun.

Græn skref eru leið fyrir opinberar stofnanir til að vinna markvisst að umhverfismálum eftir skýrum gátlistum og fá viðurkenningu eftir hvert skref. Miðstöðin er sú fyrsta af starfsstöðvum Vegagerðarinnar til að ná þessu markmiði en allar starfsstöðvarnar 22 vinna áfram að innleiðingu grænu skrefanna.

Markmið grænna skrefa eru m.a. að gera starfsemi ríkisins umhverfisvænni, draga úr rekstrarkostnaði, auka vellíðan og bæta starfsumhverfi. Grænu skrefin eru fimm og nú þegar fyrsta skrefi er náð, mun stofnunin vinna markvisst að áframhaldandi vinnu, fyrst við að ljúka innleiðingu fyrsta skrefsins í starfsemi sinni á landsbyggðinni og síðan við að ná næsta skrefi.

Hægt er að fræðast frekar um innleiðingu umhverfisstjórnunar hjá Vegagerðinni á heimasíðunni hér og um Græn skref í ríkisrekstri á vefnum Græn skref.

Á myndinni eru Ásrún Rudolfsdóttir gæðastjóri Vegagerðarinnar, Matthildur B. Stefánsdóttir deildarstjóri, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sem tekur við viðurkenningunni úr hendi Hólmfríðar Þorsteinsdóttur Umhverfissofnun og Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri sem er lengst til hægri.

Græn skref - skref eitt