Fréttir
Ný brú komin yfir Vatnsdalsá - opið fyrir umferð
Bráðabrigðabrúin klár er 45 m löng stálbitabrú
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar hefur nú lokið við að byggja bráðbirgðabrú yfir Vatnsdalsá við Grímstungu. Gamla brúin féll undan efnisflutningabíl í síðasta mánuði. Flokkurinn sem telur 5-6 menn hóf smíðina á sjálfri brúnni 4. september og luku henni þann 18. september en þá átti eftir að fylla að.
Fyrst þurfti þó flokkurinn að rífa gömlu brúna svo sem sjá má á myndunum sem fylgir. Vel og greiðlega gekk að smíða brúna sem er 45 m löng stálbitabrú með timburgólfi í þremur höfum. Akbrautarbreidd er 3,6 m og heildarbreidd 4,0 m. Miðhaf brúarinnar er 22 m langt, undirstöður eru nálægt árbökkum beggja vegna og því var lítið hreyft við ánni sjálfri. Undirstöður eru í landi í fyllingu báðum megin.
Bráðabirgðabrúin var byggð fyrir fullt umferðarálag. 200 m langar vegtengingar voru lagðar beggja vegna brúarinnar og lauk því verki endanlega í dag. Efnismagn í vegtengingum er um 3000 m3.
Umferð er nú öllum opin. Ekki er vitað hvenær verður ráðist í gerð nýrrar brúar né hvernig sú mun líta út. Það ræðst af fjárveitingum fyrst og fresmt.