Níu prósenta minni umferð á Hringvegi í júní
mikill samdráttur heldur áfram
Umferðin á Hringvegi í júní dróst saman um níu prósent í júní sem er mjög mikill samdráttur. Mestur varð samdrátturinn á Mýrdalssandi þar sem 62 prósentum færri ökutæki fóru um teljarann en í sama mánuði fyrir ári. Frá áramótum hefur umferðin dregist sama um 14 prósent.
Milli
mánuða
Umferðin
yfir 16 lykilteljara á Hringvegi reyndist 9% minni í júní miðað við sama mánuð á
síðasta ári. Mestur mældist samdrátturinn um lykilsnið á Austurlandi eða
tæplega 35% en minniháttar aukning mældist yfir mælisnið á og í grennd við
höfuðborgarsvæðið eða 0,2%.
Þó að Austurland sýni mestan samdrátt þá dróst umferðin mest saman yfir teljara á Mýrdalssandi eða um rúmlega 62% miðað við sama mánuð á síðasta ári. Aðeins teljari við Úlfarsfell sýndi aukningu sem nam 3,4%.
Það sem af
er ári hefur aðeins einn mánuður sýnt aukningu en það var febrúar með 0,6%
aukningu.
Frá
áramótum
Nú hefur
umferðin dregist saman um rúm 14%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Þetta er mesti samdráttur sem mældur hefur verið miðað við árstíma fyrir
lykilmælisniðin 16.
Umferðin hefur dregist mest saman um Austurland eða um 32% en minnst um teljara á eða í grennd við höfuðborgarsvæðið eða tæplega 7%.
Umferð
vikudaga
Frá
áramótum hefur umferð dregist saman í öllum vikudögum en mest á sunnudögum eða um rúm 20%. Minnst hefur umferð dregist saman á þriðjudögum eða um rúmlega 12%.
Mest hefur verið ekið á föstudögum en minnst hefur verið ekið á laugardögum
Horfur út
árið
Eins og
áður hefur komið fram er ill mögulegt að segja til um þróunina út árið, mikið
veltur á næstu þremur mánuðum hvernig árið kemur út. En nú gerir
reiknilíkan umferðardeildar ráð fyrir því að umferð geti dregist mikið saman í
næstu mánuðum og er því að spá um 15% samdrætti á Hringvegi. Gangi það
ekki eftir þá gæti samdrátturinn orðið mun minni eða í kringum 10%.
Það verður fróðlegt að sjá næstu mánuði hvort að umferðin nái að verða svipuð því sem hún var á síðasta ári eða hvort áfram verði um 10% samdráttur í hverjum mánuði.