Fréttir
  • Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður 17. nóvember.
  • Plakat. Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa.

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

17. nóvember klukkan 14

13.11.2019

Árleg alþjóðleg minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa verður haldin við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi sunnudaginn 17. nóvember kl. 14. Sambærilegar athafnir verða haldnar víða um land á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Hliðstæð athöfn fer fram víða um heim undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu.

Hugað að stöðu aðstandenda

Allir eru velkomnir að taka þátt í minningarathöfninni við þyrlupall bráðamóttökunnar í Fossvogi. Boðað verður til einnar mínútu þagnar kl. 14:15 og eru allir sem eiga þess kost hvattir til að taka þátt í því. Í ár verður kastljósinu sérstaklega beint að erfiðum aðstæðum aðstandenda eftir umferðarslys. Ása Ottesen markaðsstjóri mun flytja ávarp við athöfnina en hún hefur glímt við mikil áföll. Bróðir hennar lést í bílslysi fyrir mörgum árum en móðir hennar slasaðist einnig í því slysi. Systir hennar slasaðist alvarlega í umferðarslysi nýlega og er bundin við hjólastól.

Sambærilegar athafnir víða um land

Staðfest er að Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur fyrir athöfnum víða um land og hægt er að afla nánari upplýsinga um það hjá Slysavarnarfélaginu. 

Viðbragðsaðilar heiðraðir

Hér á landi hefur skapast sú hefð við athöfnina að heiðra þær starfsstéttir sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður. Gert er ráð fyrir að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar lendi á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við þyrluna.

Dagskrá:

• 13:45 – Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við spítalann.
• 14:00 – Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri setur athöfnina.
• 14:05 – Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytur ávarp.
• 14:10 – Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flytur ávarp og segir frá tilefni dagsins.
• 14:15 – Mínútuþögn.
• 14:16 – Ása Ottesen segir sögu sína.• 14:30 – Athöfn lýkur. 

PLAKAT-Minningardagur 2019