Minni aukning í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu
Vel yfir meðaltali eigi að síður
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í október jókst um rúm fjögur prósent, það er helmingi minna en umferðin jókst í sama mánuði í fyrra en er þó töluvert yfir meðaltalsaukningu. Útlit er fyrir að umferðin í ár á höfuðborgarsvæðinu aukist um þrjú prósent.
Milli
mánaða fyrir árin 2017 og 2018
Umferðin í
nýliðnum mánuði, á höfuðborgarsvæðinu, jókst um 4,1% miðað við sama mánuð á síðasta ári, ef
marka má 3 lykil mælisnið Vegagerðarinnar. Þessi aukning er helmingi minni en á
síðasta ári en heldur meiri en Vegagerðin gerði ráð fyrir.
Mest jókst umferðin í mælisniðum á Reykjanesbraut og Vesturlandsvegi eða um 4,2% en lítið eitt minna á Hafnarfjarðarvegi eða um 3,8%.
Nú hefur umferðin aukist að jafnaði um 3,2% í hverjum október mánuði frá árinu 2005. Þessi aukning nú er því vel yfir því meðaltali.
Frá
áramótum milli áranna 2017 og 2018
Nú hefur
umferðin aukist um 2,9% miðað við það sem af er ári ef miðað er við sama tímabil á
síðasta ári. Þessi aukning er tæplega þrefalt minni en átti sér stað á sama
tíma fyrir ári síðan og það þarf að fara aftur til ársins 2013 til að finna
svipað litla aukningu miðað við árstíma.
Umferð
eftir vikudögum
Í nýliðnum
mánuði var, eins og svo oft áður, mest ekið á föstudögum en minnst á
sunnudögum.
Umferðin, í nýliðnum mánuði, jókst mest á þriðjudögum eða um 5,7% og minnst á laugardögum eða um 0,1% ef miðað er við október á síðasta ári.
Horfur út
árið 2018
Horfur
breytast lítið frá síðasta mánuði og áfram er gert ráð fyrir um 3% aukningu í
lykilsniðunum þremur.