Fréttir
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Meiri umferð en í fyrra en minni en 2019

Þriðjungi meira ekið í apríl á höfuðborgarsvæðinu en í fyrra.

4.5.2021

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum apríl mánuði reyndist nærri þriðjungi meiri en í sama mánuði fyrir ári. Aukningin skýrist af Covid-faraldrinum. Frá áramótum hefur umferðin aukist um ríflega tíu prósent miðað við árið 2020 en dregist saman um tæp fjögur prósent sé tekið mið af árinu 2019.

Milli mánaða 2020 og 2021
Umferðin yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu reyndist tæpum 32% meiri, í nýliðnum apríl, en í sama mánuði á síðasta ári. Helsta ástæða svo mikillar aukningar er auðvitað sú að á síðasta ári geisaði fyrsta bylgja Covid-faraldursins á þessum tíma.

Mest jókst umferðin um Hafnarfjarðarveg eða um rúmlega 41% en minnst um Vesturlandsveg eða um rúmlega 29%.

Frá áramótum
Nú hefur umferðin aukist um 10,4% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Ef hins vegar er miðað við árið 2019 þá er umferðin 2021 enn tæpum 4% undir því, sem hún var á þessum sama tíma árið 2019.

Umferð eftir vikudögum
Í síðasta mánuði jókst umferðin í öllum vikudögum, borið saman við sama mánuð á síðasta ári, mest jókst umferðin á sunnudögum eða um rúmlega 48% en minnst á fimmtudögum eða um rúmlega 24%.

Mest var ekið á þriðjudögum en minnst á sunnudögum.

Horfur út árið
Nú stefnir í að umferðin, nú í ár, geti aukist um 8% miðað við árið 2020. Ef þessar horfur ganga eftir þá yrði umferðin, nú í ár, samt sem áður um 3% minni en hún var árið 2019.