Fréttir
  • Kjalvegur(35) og brú yfir Grjótá í Árnessýslu. Mynd/VAI

Framtíð þjóðvega á hálendinu

Málþing Vegagerðarinnar í beinu streymi 11. maí 2021

6.5.2021

Vegagerðin stendur fyrir málþingi um þjóðvegi á hálendinu í beinu streymi þriðjudaginn 11. maí 2021 frá klukkan 9.00 til 12.30.

Eitt af verkefnum Vegagerðarinnar samkvæmt samgönguáætlun 2020-2034 er að móta stefnu um hönnun vega á hálendi Íslands í samræmi við áherslur í landsskipulagsstefnu. Vegagerðin stígur nú sín fyrstu skref í þessa átt en vill fyrst af öllu heyra skoðun ólíkra hópa á málefninu. Hvernig þeir sjái fyrir sér vegi á hálendinu, hvar þeir eigi að vera, hvernig og hverjum þeir skuli þjóna.

Af því tilefni er nú boðað til málþings þar sem ólíkir hagaðilar koma sínum skoðunum á framfæri.

Dagskrá

9.00    Málþing hefst

  • Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar setur málþingið                
  • Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra, ávarpar þingið          
  • Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar
  • Páll Gíslason staðarhaldari í Kerlingarfjöllum                

10:00-10:15 Hlé                 

  • Ásdís Hlökk Theodórsdóttir forstjóri Skipulagsstofnunar                   
  • Helgi Kjartansson oddviti Bláskógabyggðar
  • Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður               

  • Gunnar Valur Sveinsson verkefnastjóri hjá SAF, Samtökum ferðaþjónustunnar

11:15-11:30 Hlé                 

  • Snorri Ingimarsson og Hafliði Sigtryggur Magnússon frá 4x4

  • Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands              
  • Tryggvi Felixson formaður Landverndar                                    
  • Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir frá Vatnajökulsþjóðgarði         

12:15-12:30 Fyrirspurnir  

Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson forstöðumaður samskipta hjá Vegagerðinni

Fyrirspurnir er hægt að senda í gegnum vefsíðuna sli.do með lykilorðinu #halendi.

l