Fréttir
  • Lokahönd er lögð á malbikun á Reykjanesbrautinni.
  • Ný göngubrú við Ásland verður hífð á stöpla sína fimmtudaginn 27. ágúst.
  • Uppsteypu undirganga við Strandgötubrú er lokið og unnið er að frágangi.
  • Verktaki er að ljúka frágangi jarðvegshólfa vestan Strandgötubrúar ásamt því að setja upp hljóðveggi við Strandgötubrú.
  • Þessa dagan er verið að klára að malbika síðasta kafla endurbættrar norðurakreinar milli Strandgötu og Kaldárselsvegs. Þar með má segja að nánast allri malbikunarvinnu sé lokið.

Malbikun að ljúka á Reykjanesbraut

Ný göngubrú hífð á stöpla sína á fimmtudag

25.8.2020

Framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar (41) á 3,2 km kafla frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi ganga vel þessa dagana.

Þessa dagan er verið að klára að malbika síðasta kafla endurbættrar norðurakreinar milli Strandgötu og Kaldárselsvegar. Þar með má segja að nánast allri malbikunarvinnu sé lokið.

Uppsteypu undirganga við Strandgötubrú er lokið og unnið er að frágangi. Þá hefur ný göngubrú við Þorlákstún verið tekin í notkun.

Ný göngubrú við Ásland verður hífð á stöpla sína fimmtudaginn 27. ágúst. Framkvæmdirnar fara fram milli klukkan 9.30 og 13 og verður Reykjanesbraut lokað milli Kaldárselsgatnamóta og Strandgötubrúar á meðan. Hjáleið verður um Ásbraut en ljóst er að búast má við nokkrum töfum á umferð meðan á lokuninni stendur.

Verktaki er að ljúka frágangi jarðvegshólfa vestan Strandgötubrúar ásamt því að setja upp hljóðveggi við Strandgötubrú. Vinna við jarðvegshólf austan við Strandgötubrú hefur jafnframt hafist.

Samhliða þessu er verktaki að vinna í almennum frágangi á vinnusvæðinu og mega vegfarendur búast við að umferð verði hliðrað milli akbrauta meðan því stendur.

Framkvæmdirnar á Reykjanesbrautinni fara fram í mikilli nálægð við þunga umferð, íbúabyggð er mikil í næsta nágrenni og þar eru einnig skólar og verslanir. Því er lögð mikil áhersla á öll öryggismál.

Ýmislegt hefur áunnist í sumar og voru að jafnaði 50 starfsmenn á vinnusvæðinu. Áætluð verklok eru í nóvember.