Lítil aukning í desember í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu
umferðin jókst aðeins um 0,5 prósent í desember
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum desembermánuði jókst um 0,5 prósent sem er lítil aukning. Í heild jókst umferðin á svæðinu á árinu 2018 um 2,8 prósent og þarf að fara aftur til ársins 2012 til að finna minni aukningu umferðar á einu á ári. Sjá töflu neðst í fréttinni.
Milli
mánaða 2017 og 2018
Umferðin á
höfuðborgarsvæðin jókst aðeins um 0,5 % milli desembermánaða 2017 og 2018, yfir
þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar. Þetta er minnsta aukning milli mánaða
á árinu 2018. 1 % samdráttur mældist yfir snið á
Hafnarfjarðarvegi 0,1 % aukning yfir snið á Reykjanesbrautinni en
heildaraukningin virðist borin uppi af 2,3 % aukningu yfir snið á
Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku.
Núna hefur umferðin í desember mánuðum aukist um 2,35 % að meðaltali frá árinu 2005. Þessi aukning nú er því langt undir meðaltalsaukningu, á umræddu tímabili.
Hlutfallsleg meðaltalsaukning milli mánaða hefur verið mest í október eða 3,15 %, frá því að þessi samantekt hófst árið 2005.
Á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði mest ekið í september en minnst í janúar.
Milli
vikudaga
Í nýliðnum
mánuði varð samdráttur mánudaga til og með miðvikudaga þar sem umferðin dróst
mest saman á miðvikudögum eða um 6,0 %. Umferðin jókst hins vegar á
fimmtudögum til og með sunnudaga þar sem mesta aukningin varð á sunnudögum eða aukning sem nam 13,3 %.
Mest var ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.
Frá
áramótum milli áranna 2017 og 2018
Umferðin í
umræddum mælisniðum jókst um 2,8% milli áranna 2017 og 2018. Leita þarf
aftur til ársins 2012 til að finna minni aukningu á milli ára en þá jókst
umferðin um 1,4% milli áranna 2011 og 2012.
Ár | Aukning frá fyrra ári |
---|---|
2018 | 2,8 % |
2017 | 8,0 % |
2016 | 7,2 % |
2015 | 4,2 % |
2014 | 3,0 % |
2013 | 2,8 % |
2012 | 1,4 % |