Líka metumferð á höfuðborgarsvæðinu
hefur ekki áður mælst meiri umferð í september
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í september reyndist 2,6 prósentum meiri en í sama mánuði fyrir ári. Umferðin hefur ekki áður mælst meiri í september. Maí og september eru iðulega umferðarmestu mánuðirnir. Nú stefnir í að umferðin verði svipuð og í fyrra en minni en metárið 2019.
Milli mánaða
Samkvæmt þremur
lykilteljurum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst umferðin þar um 2,6%
milli september mánaða 2021 og 2022. Mest jókst umferð yfir mælisnið á
Hafnarfjarðarvegi eða um 4,4% en minnst yfir mælisnið á Reykjanesbraut eða um
0,9%. Þessi aukning varð til þess að ekki hefur áður mælst meiri umferð í
september á höfuðborgarsvæðinu. En fyrra umferðarmet var á síðasta ári þegar
það fóru tæplega 178 þús. ökutæki um sniðin þrjú að jafnaði á dag en í nýliðnum
september var ökutækjafjöldinn kominn í rúmlega 182 þús. ökutæki á dag.
September og maí eru gjarnan umferðarmestu mánuðir ársins á höfuðborgarsvæðinu og var maí á þessu ári sá umferðarmesti frá því að mælingar hófust en þá fóru rúmlega 183 þús. ökutæki á sólarhring yfir mælisniðin þrjú.
Umferð frá
áramótum
Nú þegar níu
mánuðir eru liðnir af árinu 2022 hefur umferðin aukist um tæp 2% miðað við sama tíma á
síðasta ári.
Umferð eftir
vikudögum
Í nýliðnum mánuði
var umferðin mest á föstudögum en minnst á sunnudögum. Umferð jókst alla
vikudaga miðað við sama mánuð á síðasta ári og hlutfallslega mest á mánudögum eða um
5,5%. Minnst jókst umferð á föstudögum eða um 0,8%.
Umferðin á bíllausa daginn, miðvikudaginn 21. september, reyndist 1,3% minni en meðalumferð virkra daga í september.
Horfur út árið
Hegði umferðin
sér líkt og í venjulegu ári má gera ráð fyrir að hún verði svipuð og hún var á
síðasta ári. Þetta merkir að umferðarmetið frá árinu 2019 muni standa enn um
sinn.