Fréttir
  • Rannsóknaverkefni með HÍ
  • Rannsóknaverkefni með HÍ
  • Rannsóknaverkefni með HÍ
  • Rannsóknaverkefni með HÍ

Leiðir til að stytta framkvæmdatíma á verkstað rannsakaðar

Rannsóknarverkefni í umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands unnið í samstarfi við Vegagerðina

15.9.2022

Í samvinnu við Vegagerðina vinnur Háskóli Íslands að rannsóknaverkefni sem miðar að því að stytta framkvæmdatíma á byggingarstað. Það er allra hagur að sá tími sé sem stystur. Þetta verkefni snýr að tengingum á forsteyptum veggjum og staðsteyptum sökklum.

Markmið verkefnisins er þróa nýja tengingu milli forsteypts stöpulveggjar og staðsteypts sökkuls til að lágmarka og stytta framkvæmdatímann á byggingarstað. Verkefnið er unnið sem meistaraverkefni í byggingarverkfræði við Háskóla Íslands og lokaverkefni í byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Vegagerðina, BM Vallá og Vistu verkfræðistofu.

Þann 14. september sl. fór fram tilraun á fyrra prófstykki á spennigólfi VR-III byggingu Háskóla Íslands sem hýsir rannsóknaraðstöðu umhverfis- og byggingarverkfræðideildar Háskóla Íslands. Prófstykkið var útfært eins og um staðsteypta útfærslu sé að ræða. Það verður svo notað til að bera saman við nýja tengingu milli forsteypts stöpulveggjar og staðsteypts sökkuls.

Verkefnið vinna Franz Sigurjónsson, meistaranemandi í byggingarverkfræði við Háskóla Íslands, og Rúnar Steinn Smárason, nemandi í byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Báðir vinna verkefnið til lokaprófs undir handleiðslu Bjarna Bessasonar, prófessors við umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, og Ólafs Sveins Haraldssonar, forstöðumanns rannsóknadeildar Vegagerðarinnar.

Aðspurðir hvernig gekk voru þeir sammála um að viðmiðunartengingin stóðst væntingar. „Tengingin fór í gegnum 11 stigvaxandi álagspróf og hélt hún styrk alveg fram til loka þegar tvö langjárn í veggnum slitnuðu“. Þeir nefna að mörgu er að hyggja í prófunum sem þessum en það er gagnasöfnunin. „Söfnun gagna er mikilvægt til að geta borið saman prófstykkin“.  Þeir sérstaklega þakka Agli Arnari Valssyni, tæknimanni verkfræðideilda Háskóla Íslands, og Eggerti Guðmundssyni, tæknistjóra Vistu verkfræðistofu, fyrir aðstoðina í þeim efnum.

Franz og Rúnar Steinn hafa þegar hafist handa við að fjarlægja prófstykkið til að koma nýju tengingunni fyrir. Þá hlakkar til að prófa nýju tenginguna og gera þeir ráð fyrir að það verði um miðja næstu viku.

Á myndunum má sjá Franz Sigurjónsson og Rúnar Stein Smárason.