Fréttir
Land keypt undir breikkun Vesturlandsvegar
Fyrsti landeigandinn skrifar undir samning við Vegagerðina
Unnið er hörðum höndum að undirbúningi breikkunar Vesturlandsvegar og var skrifað undir fyrsta samning um kaup Vegagerðarinnar á landi undir breikkuna á mánudag. Fyrirhugað er að hefja framkvæmdir við breikkunina um Kjalarnes síðar á þessu ári þegar umhverfismati er lokið og framkvæmdaleyfi hefur verið gefið út.Á næstu vikum mega landeigendur búast við að fulltrúar Vegagerðarinnar hafi samband við þá, í þeirri viðleitni að ná samningum um kaup á landi undir veginn og hliðarvegi þar sem það á við.
Fyrst landeigenda til að undirrita samning við Vegagerðina var Rúna Hauksdóttir Hvannberg, sem er einn af landeigendum Móavíkur.
Á myndunum eru: Rúna Hauksdóttir Hvannberg, Anna Elín Jóhannsdóttir verkefnastjóri Vegagerðinni og Reynir Karlsson hjá AM PRAXIS.