Fréttir
  • Djúpavík í Árneshreppi

Kynningarfundur vegna framkvæmda á Strandavegi um Veiðileysuháls

Kynningarfundur – mat á umhverfisáhrifum.

18.11.2022

Kynningarfundur vegna mats á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar: Strandavegur (643) um Veiðileysuháls, Kráká-Kjósará í Árneshreppi, verður haldinn þriðjudaginn 22. nóvember kl. 14:00. Kynningunni verður streymt.
Streymislinkur: https://livestream.com/accounts/5108236/events/10687699

Markmið framkvæmda er að bæta samgöngur á Vestfjörðum og hafa þar með jákvæð áhrif á samfélagið. Með nýjum vegi um Veiðileysuháls verða samgöngur í Strandasýslu áreiðanlegri og öruggari. Nýr vegur verður með bundnu slitlagi (klæðingu) og uppbyggður með tilliti til snjóa. Að loknum framkvæmdum verður mögulegt að halda veginum á milli Bjarnarfjarðar og Djúpavíkur opnum allan ársins hring sé á annað borð ferðaveður.

Vegagerðin hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu um Strandaveg um Veiðileysuháls í Árneshreppi.

Vegagerðin minnir á að tillaga að ofangreindri framkvæmd og umhverfismatsskýrsla liggur frammi til kynningar frá 2. nóvember til 14. desember 2022 hjá Verzlunarfjelagi Árneshrepps, Norðurfirði og hjá Skipulagsstofnun.

Sjá einnig skýrsluna og önnur gögn hér á vef Vegagerðarinnar.

Umhverfismatsskýrslan er einnig aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is

Hafi fjölmiðlar eða aðrir áhuga má streyma fundinum með neðanrituðum kóða: 

<iframe id="ls_embed_1668781653" src="https://livestream.com/accounts/5108236/events/10687699/player?width=720&height=405&enableInfoAndActivity=true&defaultDrawer=&autoPlay=true&mute=false" width="720" height="405" frameborder="0" scrolling="no" allowfullscreen> </iframe><script type="text/javascript" data-embed_id="ls_embed_1668781653" src="https://livestream.com/assets/plugins/referrer_tracking.js"></script>