Kynningarfundur um stofnvegaframkvæmdir samgöngusáttmálans
Streymi af fundi
Betri samgöngur ohf. og Vegagerðin héldu kynningarfund
þriðjudaginn 6. júlí þar sem farið var yfir þær stofnvegaframkvæmdir
sem fyrirhugaðar eru á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Upptöku af fundinum er að finna hér að neðan.
Markmið Samgöngusáttmálans er að auka valkosti þegar kemur að samgöngum en aldrei fyrr hefur verið lagt í jafn umfangsmiklar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Uppbygging stofnvegakerfisins er stærsti einstaki þátturinn í sáttmálanum en hann felur einnig í sér uppbyggingu almenningssamgangnakerfisins (Borgarlínan), lagningu göngu- og hjólastíga og verkefni sem snúa að bættu umferðaröryggi og - flæði.
Arnarnesvegur eykur öryggi
Á fundinum var sérstök áhersla lögð á kynningu á lokaáfanga Arnarnesvegar sem mun liggja frá gatnamótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar að Breiðholtsbraut. Arnarnesvegur hefur lengi verið á skipulagi enda er hann ein af forsendum uppbyggingar í efri hverfum Kópavogs. Útfærslan, sem kynnt var á fundinum, er niðurstaða umtalsverðrar greiningarvinnu og samstarfs Vegagerðarinnar, Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar.
Áfanginn mun létta verulega á umferð um Vatnsendaveg en í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15.000 manns. Með breytingunni eykst öryggi vegfarenda og ferðatími styttist. Þá mun vegkaflinn bæta viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur til muna.
Þegar ferðaleiðum fjölgar mun umferð einnig léttast á Reykjanesbraut og mun fullgerður Arnarnesvegur því hafa jákvæð áhrif á flæði umferðar fyrir íbúa Kópavogs, Reykjavíkur, Garðabæjar og Hafnarfjarðar.
Upptaka af kynningarfundinum
Dagskrá fundar:
- Árni Mathiesen, stjórnarformaður Betri samgangna, setur fundinn
- Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, fjallar um stöðu einstaka stofnvegaframkvæmda innan Samgöngusáttmálans.
- Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni, kynnir Arnarnesveg
- Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, ræðir um Arnarnesveg
- Pawel Bartoszek, formaður skipulagsráðs Reykjavikurborgar, fjallar um Arnarnesveg og uppbyggingu Vetrargarðsins í nálægð við veginn.
- Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, ræðir mikilvægi greiðra samgangna fyrir viðbragðsaðila.
Yfirlitsmynd af hönnun Arnarnesvegar, nærmynd - pdf