Fréttir
  • Opnun tilboða í Suðurlandsveg

Íslenskir aðalverktakar með lægsta boð í Suðurlandsveg

tilboð opnuð í annan áfanga Hringvegar á milli Hveragerðis og Selfoss

3.3.2020

Tilboð í annan áfanga breikkunar Hringvegar á milli Hveragerðis og Selfoss voru opnuð í dag. Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta boð upp á ríflega fimm milljarða króna. Tilboðið nam tæplega 97 prósentum af áætluðum verktakakostnaði. Tilboð Suðurverks og Loftorku og tilboð Ístaks voru nokkuð hærri

Í dag voru opnuð tilboð í byggingu annars áfanga breikkunar Hringvegar milli Biskuptstungnabrautar og Hveragerðis í Ölfusi.

Þrjú tilboð bárust þegar tilboð voru opnuð klukkan 14:15 í dag:

 VerktakiTilboð  Hlutfall
Ístak hf.kr. 5.869.154.444

111,9% 

Suðurverk hf. og Loftorka ehf. kr. 5.712.025.923 108,9%
Áætlaður verktakakostnaður kr. 5.245.000.000100,0%
Íslenskir aðalverktakar hf. kr. 5.069.186.286

 96,6%


Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og breikkun og endurgerð að hluta, alls um 7,1 km. Gerð verða ný vegamót við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri ásamt nýju hringtorgi við Biskupstungnabraut. Lagður verður nýr tæplega 5 km Ölfusvegur með hjólareinum ásamt breytingu á Þórustaðavegi og Biskupstungnabraut.

Byggð verða þrjár nýjar brýr á Gljúfurholtsá og Bakkárholtsá, undirgöngum fyrir bíla við Þórustaði og við Kotströnd þar sem Ölfusvegur fer undir nýjan Hringveg.  Þá verða byggð tvenn sérstök undirgöng fyrir reiðleiðir og gönguleiðir.

Einnig eru breytingar á lögnum veitufyrirtækja innifalin í verkinu.

Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi með því að aðskilja akstursstefnur og fækka tengingum við Hringveg ásamt því að auka umferðarrýmd vegakerfisins milli Hveragerðis og Selfoss.

Með framkvæmdinni verður jafnframt til nýr samfelldur hliðarvegur, Ölfusvegur, með sérstökum hjólareinum frá Hveragerði að Biskupstungnabraut.

Að loknum framkvæmdum verða einungis tvenn vegamót á kaflanum frá Biskupstungnabraut að Hveragerði.

Áætlað upphaf framkvæmda er vorið 2020 og verklok eru haustið 2023.
Til að ljúka breikkun Hringvegar og aðskilnaði akstursstefna frá Biskupstungnabraut að Kömbum er svo gert ráð fyrir að Hringvegur verður færður til suðurs við Hveragerði í nýja veglínu samkvæmt aðalskipulagi Hveragerðisbæjar. Sú framkvæmd er í undirbúningi og gert er ráð fyrir henni á samgönguáætlun árið 2023.
Opnun tilboða fer nú fram á vefnum, á útboðsvef, og er því aðeins opnað rafrænt. Myndin sýnir nokkra starfsmenn Vegagerðarinnar fylgjast með hinni rafrænu opnun í dag.