Fréttir
  • Hefill ryður snjó.

Hvernig þjónum við vegfarendum á veturna?

Morgunfundur Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu

16.1.2023

Vegagerðin stendur fyrir morgunfundi miðvikudaginn 18. janúar kl. 09.00-10.15. Fyrirkomulag vetrarþjónustu og starfsemi vaktstöðvar Vegagerðarinnar verða til umfjöllunar og fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja lýsa reynslu sinni af starfseminni um vetur á Íslandi.

Stöðugt er kallað eftir aukinni þjónustu við vegakerfið að vetri. Atvinnusókn á landsbyggðinni hefur breyst og fólk sækir í meiri mæli vinnu milli bæjarfélaga. Þessi samfélagsbreyting kallar á aukna þjónustu við vegakerfið. Miklu skiptir einnig að afurðir og vörur komist klakklaust milli landshluta, þrátt fyrir hálku og fannfergi. Aukinni áherslu á vetrarferðamennsku fylgja einnig nýjar áskoranir.

Vegagerðin sinnir vetrarþjónustu á stórum hluta vegakerfis landsins utan þéttbýlis. Þessum morgunfundi er ætlað að útskýra hvernig vetrarþjónustan fer fram og fá fram fleiri sjónarmið á þá þörf sem er fyrir vetrarþjónustu í þjóðfélaginu.

Morgunfundurinn verður haldinn í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Opið er á meðan húsrúm leyfir og það verður heitt á könnunni.

Dagskrá fundarins:

  • Opnun fundar Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar.
  • Á vaktinni – starfsemi vaktstöðvar. Árni Gísli Árnason, forstöðumaður vöktunar og upplýsinga hjá Vegagerðinni.
  • Fyrirkomulag vetrarþjónustunnar. Einar Pálsson, forstöðumaður vegaþjónustu Vegagerðarinnar.
  • Vetrarþjónusta - Hópbifreiðar. Harald Teitsson, framkvæmdastjóri Teits Jónassonar og formaður hópbílanefndar SAF, heldur erindi. 
  • Vetrarþjónusta – Eru bílaleigubílar fyrir? - Ingi Heiðar Bergþórsson, framkvæmdastjóri þjónustu- og starfsmannasviðs Hertz – Bílaleigu Flugleiða.

Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar. 

Streymi

Fundinum verður einnig streymt á vef Vegagerðarinnar, www.vegagerdin.is og á Facebook. Streymt verður á eftirfarandi slóð: https://livestream.com/accounts/15827392/events/10739920

Spurningar

Hægt verður að senda inn fyrirspurnir á Slido.com . Lykilorðið er Vetur