Fréttir
  • Morgunverðarfundur Vegagerðarinnar um ferðamenn og áningarstaði verður haldinn á Grand Hótel 21. janúar. Mynd/Robert Bye af vefnum Unsplash

Hvar stoppa ferðamenn? Ný dagsetning

Morgunverðarfundur Vegagerðarinnar verður 29. janúar

21.1.2020

Fjölgun ferðamanna síðasta áratug hefur verið fordæmalaus. Álagið hefur aukist á innviði landsins, ekki síst vegakerfið sem hefur þurft að anna mun meiri umferð en ráð var fyrir gert.  Áskoranir eru margar, til dæmis er mikilvægt að fjölga áningarstöðum á þjóðvegum, bæði til að auka þjónustu við ferðamenn og  ekki síst til að auka öryggi vegfarenda.

Ferðamenn á þjóðvegum og áningarstaðir verða til umfjöllunar á morgunverðarfundi Vegagerðarinnar í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík, miðvikudaginn 29. janúar klukkan 8.30 til 10. Allir eru velkomnir. Skráningargjald er 2.500 krónur en innifalið er glæsilegt morgunverðarhlaðborð frá klukkan 8 til 8.30. Skráning fer fram á tix.is

Beint streymi verður frá fundinum á facebooksíðu Vegagerðarinnar.

Fyrirlestrar

Erlendir ferðamenn á bílaleigubílum og hringvegurinn 2010-2018

Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar (RRF), kynnir niðurstöður rannsókna RRF á þróun umferðar erlendra ferðamanna á bílaleigubílum á tíu stöðum við hringveginn á tímabilinu 2010 til 2018.

Áningarstaðir Vegagerðarinnar

Einar Pálsson forstöðumaður þjónustudeildar Vegagerðarinnar fjallar um áningarstaði Vegagerðarinnar, fjölda þeirra, aðstöðu, upplýsingaskilti og áskoranir vegna aukins fjölda ferðamanna.

Hvar vilja ferðamenn stoppa?

Sóley Jónasdóttir verkefnastjóri á hönnunardeild Vegagerðarinnar segir frá verkefni þar sem kortlagðir voru staðir á og við Hringveginn þar sem ferðamenn stoppa til myndatöku.

Af hverju Norðurstrandaleið?

Björn H. Reynisson verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands fjallar um hina nýju Norðurstrandaleið, tilurð hennar, árangur og framtíðarsýn.

Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.

Skráning fer fram á tix.is