Fréttir
  • umferdin.is, mynd tekin kl. 19.00 laugardaginn 07.01.2023.

Líkur á erfiðri færð og jafnvel ófærð víða á morgun, sunnudaginn 8. janúar.

Gular viðvaranir fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir, Norðurland vestra og Norðurland eystra. 

7.1.2023

Vegagerðin vekur athygli á að gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun, sunnudaginn 8. janúar, fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir, Norðurland vestra og Norðurland eystra. Búast má við snjókomu, skafrenningi og blindu víða á vegum á þessum svæðum og því ekkert ferðaveður. 

Einnig eru líkur á að snjóflóðahætta skapist á vegum á utanverðum Tröllaskaga og á Súðavíkurhlíð.

Líklega verður færð á vegum afar erfið og jafnvel ófært víða á morgun, sunnudag og fram eftir mánudegi, gangi veðurspár eftir. Vegagerðin hvetur fólk til að vera ekki á ferðinni á þessum svæðum á meðan veður gengur yfir. Aðilar í ferðaþjónustu eru hvattir til að miðla upplýsingum til ferðamanna.

Á upplýsingasíðu Vegagerðarinnar www.umferdin.is er alltaf hægt að nálgast nýjustu upplýsingar um færð á vegum.