Fréttir
  • Ingi B. Reynisson verkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar í Borgarnesi mátaði holuna. Mynd/Ómar Kristófersson
  • Holan var tveggja metra djúp. Mynd/Ómar Kristófersson
  • Búið að gera við holuna og setja bundið slitlag yfir sárið. Mynd/Ómar Kristófersson
  • Holan skoðuð nánar. Mynd/Ómar Kristófersson

Gert við risaholu

Tveggja metra djúp og 1,5 m í þvermál

29.4.2020

Ekkert tjón varð þegar tveggja metra djúp og 1,5 metra breið hola myndaðist við brúna yfir Norðurá í vikunni. Snör viðbrögð vegfarenda, Vegagerðarstarfsmanna og verktaka skiptu þar miklu. Tilkynnt var um holuna klukkan 15 og búið var að laga veginn sex tímum síðar.

Leysingar geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir vegi landsins. Flestir kannast við holur sem myndast á þessum tíma árs á vegum með bundnu slitlagi og vinna starfsmenn þjónustustöðva Vegagerðarinnar hörðum höndum að því þessa daga og vikur að gera við holur áður en þær valda tjóni eða stækka úr hófi fram.

Óvenjulegar aðstæður urðu til þess að afar stór hola myndaðist við brú yfir Norðurá í síðustu viku. Leysingar hafa verið miklar, vatnsagi og klakahröngl hefur hálf stíflað vatnsflæðið undir brúna en við það myndast mikill vatnsþrýstingur milli steina í grjótgarðinum. Vatnið hefur síðan holað sig í gegnum styrktarlag vegarins við brúarvegginn og smám saman grafið undan klæðingu vegarins. Efnið skolaðist út neðan við brúna og mótaði röst í árfarveginn. Lítið gat sem var í klæðingunni stækkaði til muna og varð 1,5m í þvermál. Holan sjálf var tæplega tveggja metra djúp.

Vegfarandi kom að holunni og tilkynnti um hana. Starfsmenn þjónustustöðvarinnar í Borgarnesi voru við blettamerkingar stutt frá og voru komnir á staðinn aðeins nokkrum mínútum síðar, en vegfarandinn árvökuli hafði staðið vörð við holuna til að enginn hlyti skaða af. Akreinin var nú lokuð af með bíl Vegagerðarinnar og kallað eftir aðstoð til að loka svæðinu betur af með skiltum. Borgarverk kom með gröfu og vörubíl með efni til að laga veginn. Vegagerðarstarfsmennirnir höfðu svo efni tiltækt til að loka viðgerðinni með klæðingu.

Öll aðgerðin gekk vel. Starfsmenn Vegagerðarinnar komu á svæðið klukkan 15 og klukkan 21 var búið að laga veginn.