Fréttir
  • Brúin yfir Steinavötn var sett upp til bráðabirgða þegar sú eldri skemmdist.
  • Vel var mætt á kynningu framkvæmdadeildar á brúarverkefnum sem framundan eru.
  • Enn eru 36 einbreiðar brýr á Hringvegi 1.
  • Fjöldi einbreiðra brúa á Hringvegi 1.
  • Nokkrar af þeim brúm sem eru í byggingu eða verða boðnar út á næstunni.
  • Einbreiðar brýr utan Hringvegar 1 ÁDU > 600 ökutæki.

Fjölmörg brúarverkefni boðin út á næstunni

Vel var mætt á kynningarfund framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar

11.10.2019

Framkvæmdadeild Vegagerðarinnar hélt þriðjudaginn 8. október kynningarfund fyrir verktaka og aðra áhugasama um fyrirhuguð brúarverkefni á næstu mánuðum. Vel var mætt og greinilegur áhugi fyrir hendi á þessum verkefnum þó þátttaka í útboði nokkurra brúa í vor hafi verið dræm.

Enn eru 36 einbreiðar brýr á Hringveginum, lang flestar á Suður- og Suðausturlandi. Einnig eru þó nokkrar einbreiðar brýr utan Hringvegar þar sem árdagsumferð (ÁDU) er meiri en 600 bílar. Umferð um brýr landsins hefur aukist mjög síðustu ár og því hefur fjölgað þeim einbreiðu brúm sem þurfa að bera mikla umferð eins og sést á meðfylgjandi töflu.

Fjöldi einbreiðra brúa miðað við árdagsumferð (ÁDU)

 Umferð ÁDU
2015
2016
2017

> 1000

1
16
16

> 500

 14 4148

>200

 70110
124

>100

 159185
186

Þó ekki hafi unnist nægilega hratt að útrýma einbreiðum brúm á Hringvegi 1 hefur þó mikið áunnist á síðustu þrjátíu árum. Árið 1990 voru einbreiðar brýr á Hringvegi 1 hátt í 140 talsins. Þeim fækkaði hratt og voru orðnar um 60 talsins í kringum 2006 og 42 árið 2011. Síðan hefur hægst mjög á slíkum framkvæmdum og aðeins verið breikkaðar eða byggðar nýjar brýr í stað 6 einbreiðra brúa á átta árum.. En nú stendur til að gera gangskör í fækkun einbreiðra brúa og fjölmörg brúarverkefni framundan.

Árið 2019 voru byggðar 7 brýr í stað einbreiðra brúa. Þetta voru brýr í Berufjarðarbotni, yfir Hofsá í Arnarfirði, yfir Mjólká í Arnarfirði, brú á Eldvatn og yfir Loftsstaðaá, einnig brú yfir Breiðdalsá og Tjarnará. Til stóð að hefja framkvæmdir við fimm brýr til viðbótar á árinu en ekki bárust tilboð í verkefnin í vor.

Brúarverkefni boðin út á næstunni

Á næstu 30 dögum verður farið í útboð á fjórum brúm á Hringvegi 1. Þetta eru brú á Steinavötn  í Suðursveit sem er 102 m löng, brú á Fellsá í Suðursveit sem er 46 metrar, Brú á Kvíá í Öræfum sem er 38 m löng og brú á Brunná austan Kirkjubæjarklausturs sem er 24 m.

Á næsta ári eru svo fyrirhuguð tvö útboð til viðbótar. Það er 160 m löng brú á Jökulsá á Sólheimasandi og brú á Hverfisfljót.

Fjölmörg önnur verkefni eru í undirbúningi sem tengjast einbreiðum brúm á stofnvegum. Á Bíldudalsvegi er það brú á Botnsá, á Vestfjarðavegi í Önundarfirði er það brú á Bjarnadalsá, á Skrið- og Breiðdalsvegi er það brú á Gilsá á Völlum og á Norðausturvegi er það brú á Köldukvíslargil sem er eina einbreiða brúin á leiðinni frá Húsavík að Ásbyrgi.  

 

Yfirlitsgrein um fækkun einbreiðra brúa birtist í Framkvæmdafréttum í apríl 2018. Hana má lesa hér.