Fréttir
  • Umferðin samanlagt
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Enn slegið met í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu

aldrei fleiri ökutæki í mars 

4.4.2023

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í mars jókst um ríflega átta prósent frá sama mánuði fyri ári síðan. Þetta er metumferð og reyndist umferðin 7,5 prósentum meiri en í fyrra metári sem var árið 2019. Umferðin fyrstu mánuði ársins hefur aukist um heil 11 prósent og er það einnig met fyrir árstímann. 

Milli mánaða
Líkt og á Hringvegi jókst umferð mikið á höfuðborgarsvæðinu í mars miðað við sama mánuð á síðasta ári, en aukningin nam rúmlega 8%.  Þessi aukning varð til þess að nýtt met var slegið í umferðinni í mars, yfir lykil mælisnið á höfuðborgarsvæðinu. Umferðaraukningin nú reyndist 7,5% meiri en fyrra met frá árinu 2019, en að jafnaði fóru tæplega 181.000 ökutæki á sólarhring yfir mælisniðin þrjú.

Hlutfallslega jókst umferð mest yfir mælisnið ofan Ártúnsbrekku eða um tæp 11% en minnst jókst umferð yfir mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um rúmlega 6%.

Frá áramótum
Nú hefur umferð aukist um tæp 11%, frá áramótum og er þetta mesta aukning, sem mælst hefur miðað við árstíma, síðan þessi samantekt hófst árið 2005.

Umferð eftir vikudögum
Umferð jókst í öllum vikudögum en hlutfallslega mest á laugardögum, eða um rúmlega 12%, en minnst á þriðjudögum, eða um rúmlega 5%.

Mest var ekið á föstudögum, í nýliðnum mars, og minnst á sunnudögum.