Fréttir
  • Covid umferðin það sem af er ári 25.01.21

Dregur úr samdrættinum í umferðinni

Umferðin í síðustu viku aðeins tveimur prósentum minni

25.1.2021

Umferðin í síðustu viku reyndist einungis tveimur prósentum minni en í sömu viku fyrir ári síðan. Þannig dregur verulega úr samdrætti milli ára og virðist því sem umsvifin í þjóðfélaginu séu að verða svipuð og áður þrátt fyrir verulegar samkomutakmarkanir og fáa ferðamenn. Sé tekið mið af því hversu mikið er ekið.

Í fjórðu viku, innan ársins, reyndist umferðin yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, tæplega 2% minni en í sömu vikum á síðasta ári.  Tilhneigingin, frá því í lok síðasta árs,  hefur verið sú að neikvæður mismunur á umferð milli ára sé sífellt að verða minni, frá því að þriðja bylgja hófst og það hittist þannig á að í síðustu viku dróst umferð einungis saman í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi, sjá hér fyrir neðan: 

 

Breyting á milli ára í viku 4 eftir mælisniðum:

Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk      -8,8%
Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi    +1,4%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku      +0,5%