Dregur úr aukningu umferðar á höfuðborgarsvæðinu
þrefalt minni aukning en fyrir ári síðan
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum ágúst mánuði jókst um 2,4 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Þetta er nokkuð undir meðaltalinu í ágústmánuði frá því þessar mælingar hófust árið 2005. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 2,9 prósent sem er miklu minni aukning er í fyrra.
Milli mánaða 2017 og 2018
Umferðin, yfir þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu,
jókst um 2,4% í nýliðnum mánuði miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þessi aukning er
vel undir meðalvexti í ágúst mánuði frá árinu 2005 en hún hefur að jafnaði
verið um 2,9%.
Mest jókst umferðin í sniði á Ártúnsbrekku eða um 4,1% en minnst jókst umferðin á Reykjanesbraut við Dalveg eða um 1,1%.
Umferð vikudaga
Umferðin jókst alla daga vikunnar en hlutfallslega mest á laugardögum eða um 3,1%. Mest var ekið á miðvikudögum en minnst á sunnudögum.
Frá áramótum milli áranna 2017 og 2018
Það sem af er ári hefur umferðin nú aukist um 2,9%, miðað við sama tímabil á
síðasta ári. Þetta er þrefalt minni vöxtur en á sama tíma á síðasta ári.
Horfur út árið 2018
Áfram er gert ráð fyrir að umferðaraukningin nú í ár verði öðru hvoru
megin við 3%. Árlegur meðaltalsvöxtur á milli áranna 2005 og 2017 er um 2,8%
þ.a.l. er gert ráð fyrir að vöxturinn í ár verði í meðallagi.