Fréttir
  • Byggjum grænni framtíð - kynningarfundur

Byggjum grænni framtíð - kynningarfundur

Fjarfundur í gegnum Teams

12.2.2021

Opinn kynningarfundur um samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð verður haldinn á Teams 18. febrúar klukkan 9 til 10.15.

Verkefnið heitir Byggjum grænni framtíð og á rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

Viðfangsefnið felst í að afla upplýsinga um losun mannvirkjagerðar á viðmiðunarári (2018), setja markmið um að minnka þá losun til 2030 og skilgreina aðgerðir svo það takist. Síðar á þessu ári verða niðurstöðurnar gefnar út í sérstökum Vegvísi að vistvænum mannvirkjum 2030.

Um 35 sérfræðingar víðsvegar úr byggingariðnaðinum hafa þegar hafið störf í sex hópum á vegum verkefnisins. Allir hagaðilar eru hvattir til að taka þátt í vinnustofum og samtölum sem munu fara fram á vegum hópanna á næstu vikum og mánuðum. Í vor verða svo drög að niðurstöðunum opnar fyrir umsagnir áður en endanleg útgáfa vegvísisins verður gefin út.

Á kynningarfundi verkefnisins þann 18. febrúar n.k. verður fjallað nánar um þetta spennandi og brýna verkefni, auk þess sem fulltrúar þriggja ólíkra hagaðila fjalla um tækifæri, áskoranir og ávinning varðandi vistvænni mannvirkjagerð út frá þeirra sjónarhorni.

Teams-hlekkur á fundinn

Fundurinn er öllum opinn.

Dagskrá:

Fundarstjóri: Lárus M. K. Ólafsson, Samtökum iðnaðarins

Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS, verkefnastjóri Byggjum grænni framtíð
„Byggjum grænni framtíð; Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030“

Sigríður Ósk Björnsdóttir, VSÓ/HÍ, hópstjóri í hóp 6, mælingar
„Byggjum grænni framtíð; mælingar og markmið“

Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks
„Byggingarverktakar byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur“

Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
„Sveitarfélög byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur“

Brynjólfur Bjarnason, viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka
„Fjármálastofnanir byggja grænni framtíð: Tækifæri, áskoranir, ávinningur“

Spurt og svarað í lok fundar


Frekari upplýsingar um verkefnið verða aðgengilegar á vefsíðunni byggjumgraenniframtid.is, sem verður opnuð formlega á kynningarfundinum.

Þau sem vilja fá tölvupósta með tilkynningum um vinnustofur og aðrar vörður verkefnisins eru hvött til að skrá sig hér.