Fréttir
  • Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds.

Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds er nýr yfirmaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Vegagerðinni

Mun hafa yfirumsjón með öllum verkefnum Borgarlínu hjá Vegagerðinni

11.11.2021

Arndís mun hafa yfirumsjón með öllum verkefnum Borgarlínu hjá Vegagerðinni. Borgarlínan er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Betri Samgangna og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og verður unnin í nánu samstarfi þessara aðila.

Arndís hefur undanfarin 14 ár unnið hjá OR og Veitum og nú síðast sem forstöðumaður vatns- og fráveitu. Arndís situr einnig í framkvæmdarstjórn Veitna. Arndís hefur mikla reynslu af verkefnastjórnsýslu, áætlanagerð og undirbúningi umfangsmikilla opinberra framkvæmda. Arndís hefur einnig mikla og farsæla reynslu af því að leiða opinber innviðaverkefni með ólíkum hagaðilum.

Á verkefnastofu Borgarlínu hjá Vegagerðinni starfa sérfræðingar á sviði samgöngumála og gatna- og stígahönnunar. Hópurinn samanstendur af starfsmönnum Vegagerðarinnar, sveitarfélaga og innlendum og erlendum stoðráðgjöfum Borgarlínu.

Arndís mun hefja störf á nýju ári.