Fréttir
  • Samanlögð umferð í október
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Aldrei meira ekið á Hringveginum í október

stefnir í metaukningu í ár á Hringveginum

1.11.2017

Umferðin á Hringveginum í nýliðnum októbermánuði jókst um meira en 15 prósent frá sama mánuði í fyrra og aldrei áður hefur umferðin í október aukist jafnmikið. Umferðin um Suðurlandið jókst um ríflega 22 prósent. Nú er útlit fyrir að umferðin á Hringveginum í ár verði 11 prósentum meiri en í fyrra og yrði það þá næst mesta aukning frá því að þessi samantekt hófst árið 2005. Búast má við að góð tíð í október hafi eitthvað með þessa miklu aukningu að segja.

Milli mánaða 2016 og 2017
Met aukning varð í nýliðnum október borið saman við sama mánuð á síðasta ári eða aukning upp á 15,1%.  Aldrei áður hefur umferð aukist jafn mikið milli október mánaða frá því að þessi samantekt hófst. Mikil aukning varð á öllum landssvæðum en mest jókst umferðin um Suðurland eða um 22,1% en minnst um Norður- og Austurland eða um 13,2%, af einstaka talningarstöðum. Umferðin í október hefur að jafnaði aukist mest frá árinu 2005 eða um 4,3% á ári.  Þessi aukning nú er því 3,5 sinnum meiri en meðaltalsaukningin.

Frá áramótum milli  2016 og 2017
Frá áramótum hefur umferðin nú aukist um 11,1% og er það rétt undir stöðunni, eins og hún var fyrir ári síðan en þá hafði umferðin aukist um 12,9% miðað við árið þar á undan.

Mest hefur umferð aukist um Suðurland eða um 15,8%, það sem af er ári, en minnst um Vesturland eða um 8,9%

Samanburdartafla-oktober








Umferð vikudaga áranna  2016 og 2017
Miðað við það sem liðið er af árinu þá hefur umferð aukist mest á þriðjudögum sem eru jafnframt umferðarminnstu dagarnir.  Minnst hefur umferð aukist á sunnudögum.

Lang mest er ekið á föstudögum.

Horfur út árið 2017
Þegar aðeins tveir mánuðir eru eftir af árinu 2017 eru líkur á því að umferðin aukist um 11%.  Gangi þetta eftir yrði það gríðarlega mikil aukning og sú næst mesta frá því að þessi samantekt hófst.

Talnaefni