Fréttir
  • Loftbrú var hleypt af stokkunum 9. september 2020 með það að markmiði að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti.
  • Fjöldi nýttra flugleggja eftir árum.
  • Fjöldi nýttra flugleggja eftir kyni og aldri.

Aldrei fleiri nýtt Loftbrú

Konur í meirihluta notenda Loftbrúar

12.7.2022

Fimmtíu prósent fleiri flugferðir hafa verið pantaðar í gegnum afsláttarkerfi Loftbrúar í ár en allt árið í fyrra.

Loftbrú var hleypt af stokkunum 9. september 2020 með það að markmiði að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti. Loftbrú veitir afsláttarkjör til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni fjarri höfuðborgarsvæðinu og á eyjum án vegasambands. Rúmlega 60 þúsund íbúar eru með réttindi á Loftbrú en hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að sex flugleggi til og frá Reykjavík á ári.

Loftbrú hefur verið vel tekið frá því hún var sett í loftið og verið notuð til niðurgreiðslu á yfir 100 þúsund flugleggjum á þeim tæpum tveim árum sem hún hefur verið aðgengileg. Það sem af er árinu 2022 hafa 50 % fleiri flugferðir verið pantaðar í gegnum Loftbrú í samanburði við allt árið 2021. Konur eru meirihluti notenda Loftbrúar eða 56 %, og eru almennt með ríkjandi meirihluta í öllum aldursflokkum, en fjölmennasti hópur notenda er á aldrinum 20-24 ára eða um 9 %. 

Vegagerðin hefur umsjón með Loftbrú fyrir hönd ríkisins og sinnir öllu eftirliti og umsýslu henni tengdri. Bakendakerfi Loftbrúar er hýst á island.is en heimasíðan loftbru.is er rekin af upplýsinga- og þjónustuveitunni Stafrænu Íslandi. Þar auðkennir fólk sig með rafrænum skilríkjum og þeir sem eiga rétt á Loftbrúfá yfirlit yfir réttindi sín. Þeir sem vilja nýta afsláttinn sækja sérstakan afsláttarkóða sem notaður er á bókunarsíðum flugfélaga þegar flug í áætlunarflugi er pantað.

Vegagerðin varðveitir og ber ábyrgð á gögnum Loftbrúar sem gefa mikilvægar upplýsingar um nýtingu á Loftbrú eftir upphafs- og endastað, kyni, aldri og búsetu, sem og þróun verðs á flugfargjöldum. Notkun og birting þessara gagna er ávallt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Gögnin eru því fyrst og fremst til að greina nýtingu Loftbrúar samkvæmt grunnforsendum afsláttarkjaranna; bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti.