Fréttir
  • Skúffuna má finna neðst á vegagerdin.is undir hlekknum Rafrænir reikningar.

Aðeins tekið á móti rafrænum reikningum

Vegagerðin vinnur að því að innleiða pappírslaus viðskipti.

27.8.2019

Frá og með 1. janúar 2020 tekur Vegagerðin aðeins við rafrænum reikningum en ekki á pappírsformi.

Vegagerðin hefur undanfarin ár unnið að því að innleiða pappírslaus viðskipti. Einn liður í því er að taka einungis á móti reikningum á rafrænu formi. Þetta hefur marga kosti í för með sér. Minni sóun verður á pappír auk þess sem sendingarkostnaður verður lítill sem enginn. Þá berast reikningar Vegagerðinni hratt og vel, en þeir eru komnir inn í bókhaldskerfi stofnunarinnar innan við tveimur tímum eftir að þeir eru sendir. Þar af leiðandi er einnig hægt að greiða reikningana mun fyrr.

Til að koma til móts við þá sem ekki hafa tök á að koma sér upp rafrænu bókhaldskerfi hefur Vegagerðin sett upp póstsendingarkerfi á heimasíðu sinni sem heitir „Skúffan“. Þar geta þeir sem eingöngu eru með reikninga á pappír skráð þá inn og sent Vegagerðinni rafrænt. Viðmót Skúffunnar er afar einfalt og sparar bæði vinnu og tíma.

Skúffan verður virk á heimasíðu Vegagerðarinnar frá og með 1. september. Vegagerðin beinir þeim vinsamlegu tilmælum til viðskiptavina sinna að nýta þennan sendingarmáta, en eins og áður sagði verður ekki tekið á móti reikningum á pappírsformi frá áramótum.

Skúffuna er að finna neðst á vegagerdin.is undir Rafrænir reikningar. Tengillinn verður virkur 1. september.

Hér má finna leiðbeiningar um notkun skúffunnar.