Almenn verkefni 2023

Heiti verkefnis : 

PTO í malbik á Íslandi

Verkefnastjóri : 

 

Stutt lýsing á verkefninu:

 

Í nútímasamfélagi er mikilvægt að leitast við að minnka umhverfisáhrif hvar sem hægt er, og stefna alltaf að bætingum í átt að umhverfisvænna samfélagi. Colas Ísland hefur nýlega, í samstarfi við móðurfélag sitt í Frakklandi, hafið tilraunir á notkun PTO olíu (Pitch tall oil) sem er unnin úr hliðarafurðum pappírsframleiðslu. Þar sem PTO er unnið úr trjám, er kolefnisspor efnisins neikvætt. Hægt er að blanda PTO olíu í malbik með því að minnka bik notkun á móti sem myndi það þar af leiðandi lækka kolefnisspor malbiksins umtalsvert án þess að hafa áhrif á gæði malbiksins. Blöndun PTO í bik þýðir einnig að minna þarf að nota af biki og þar með er minna gengið á takmarkaðar auðlindir jarðarinnar. Nú þegar hefur Colas Ísland lagt út malbik með 12% PTO olíu á göngustíg í Hafnarfirði, sem kom  vel út, bæði í rannsóknum á blöndunni og í útlögn. Næsta skref væri að leggja PTO blandað malbik á umferðarþungan veg og um leið setja í hjólfarapróf, slitþolspróf og vatnsnæmipróf, til að rannsaka frammistöðu þess á vegum með það að markmiði að bjóða uppá grænni kost í vegagerð á Íslandi. 

Tilgangur og markmið:

 

Tilgangurinn verkefnisins er að athuga hvaða áhrif það hefur á slitlagsmalbik á umferðarþungum vegi að bæta PTO við malbikið og hvort það hafi marktæk áhrif við íslenskar aðstæður. Markmiðið er að auka notkun PTO í malbik sem Colas Ísland framleiðir og lækka þar með kolefnisspor malbiksins til góða fyrir umhverfið og samfélagið. PTO myndi ekki einungis hafa jákvæð áhrif á kolefnisfótspor malbiks, heldur drýgir það einnig bikið, svo minna er gengið á takmarkaðar auðlindir jarðarinnar. Það er augljóst að bik er ekki óendanleg auðlind og því mikilvægt að þróa aðferðir til að minnka notkun þess. Markmið verkefnisins er að þróa grænni lausn fyrir vegagerð á Íslandi.