Almenn verkefni 2023
Almenn verkefni 2023
Heiti verkefnis : | Framkvæmdir - Kolefnisfótsporsgreining á brimvarnargörðum og sjóvörnum | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Um það bil 40% jarðarbúa búa í innan við 100 kílómetra fjarlægð frá strönd og 71% íbúa við ströndina í innan við 50 kílómetra fjarlægð frá árósum. Með sívaxandi áherslu á loftslagsbreytingar er vaxandi áhugi á að nýta umhverfisvæn mannvirki til að vernda hafnir og strendur. Auk stöðugleika gagnvart ölduálagi og kostnaðar getur kolefnisspor byggingar (CF) haft áhrif á ákvörðunartöku í verkefnum. Til að vernda hafnir og strendur eru notuð „hörð“ mannvirki eins og brimvarnargarðar. Engu að síður hefur bygging brimvarnargarða og strandvarna verulegt kolefnisspor. Í þessu rannsóknarverkefni er kolefnisspor bygginga með mismunandi gerðum brimvarna (grjót og steinsteyptra eininga) metið með vistferilsgreiningaraðferðinni (LCA). Niðurstöður greiningarinnar getur verið mikilvægt framlag til lækkunar kolefnisspors við byggingu brimvarnargarða og strandvarna mannvirkja, með því að besta hönnunar- og byggingarferla, hámarka nýtingu á framboði sprengds efnis úr námu og lágmarka notkun efna og þungra véla/tækja. Ennfremur Í þessu rannsóknarverkefni eru eiginleikar brimvarnargarð metnir. Matið veitir mikilvægar upplýsingar til endurskoðunar við hönnun brimvarnargarð sem miðar að því að uppfylla (International Union for Conservation of Nature, IUCN) staðalinn. | ||
Tilgangur og markmið: | ||
Í þessu rannsóknarverkefni er kolefnisspor við byggingu mismunandi brimvarnargarða og strandvarna metið með aðferð lífsferilsgreiningar (LCA) (megindleg greining). Ennfremur eru eiginleikar brimvarnargarða metnir út frá International Union for Conservation of Nature (IUCN) viðmiðum (eigindleg greining).
|