Almenn verkefni 2023

Heiti verkefnis : 

Evrópustaðlar CENTC154 og CENTC227

Verkefnastjóri : 

 

Stutt lýsing á verkefninu:

 

Verkefnið felst í vinnu við að hafa áhrif á gerð Evrópustaðla í tveimur tækninefndum CEN, þ.e.a.s. TC 154 um
steinefni (Aggregates) og TC 227 um vegagerðarefni (Road materials). Pétur Pétursson er virkur meðlimir í
þessum nefndum og ýmsum undirnefndum/verkefnishópum sem heyra undir þær. Birkir Hrafn Jóakimsson er
meðlimur í WG1 (malbik) undir CEN TC 227, Jón Helgi Helgason er meðlimur í WG2 (klæðing) undir CEN TC 227
og Erla María Hauksdóttir er meðlimum í nefnd CEN/TC154/SC6/WG2 (physical testing of aggregates). Lögð
hefur verið áhersla á samstarf við hin Norðurlöndin í gegnum skugganefndir sem hittast af og til.
Framleiðslustaðlar fyrir steinefni eru nú í endurskoðun, en sú vinna hefur staðið yfir
frá árinu 2013 með ýmsum óvæntum stefnubreytingum. Innan CEN/TC 227 (um prófanir og framleiðslu malbiks, klæðinga og óbundins efnis) er
mikil vinna í gangi í staðlagerð um þessar mundir. Á árinu 2016 voru gefnar út nýjar útgáfur af
framleiðslustöðlum fyrir malbik undir nefnd WG1. Undir WG2 er verið að endurskoða prófana- og
framleiðslustaðla fyrir klæðingu. Sú endurskoðun er mikilvæg þar sem mikið vantar á að þar sé lýst nægilega
vel nýjungum við gerð klæðinga, sem meðal annars hefur verið unnið að hér á landi. Mikilvægt er að hafa góða
innsýn í störf og stöðu mála í viðkomandi tækninefndum til að auðvelda upptöku nýrra staðla og að reyna að
hafa áhrif á innihald þeirra. Sóttir verða fundir í stýrinefndum CEN TC 154 og 227 og í undirnefndum WG1
(malbik) og WG2 (klæðing) undir CEN TC 227 og undirnefnd SC6/WG2 undir CEN/TC 154. Vegna útgáfu nýrra
framleiðslustaðla bæði fyrir malbik og fyrir steinefni er brýnt að endurskoða íslenska fylgistaðla ÍST 76 um
steinefni og ÍST 75 um malbik en Gunnar Bjarnason og Pétur Pétursson ásamt Staðlaráði eru höfundar þeirra
staðla.

Tilgangur og markmið:

 

Markmið verkefnisins er að taka virkan þátt í og hafa áhrif á framgang mála í nefndum CEN/TC 154
(Aggregates) og undirnefndum hennar og CEN/TC 227 (Road materials) og undirnefnum hennar. Fulltrúar
Íslands í nefndinni TC 154 (Aggregates) og undirnefndum hafa sótt fundi og náð þar fram umtalsverðum
ávinningi. Annað markmið verkefnisins er að taka virkan þátt í nefnd CEN/TC 227 (Road materials) og
undirnefndum hennar. Ýmsir staðlar hafa nú verið settir fram eða eru í vinnslu sem varða okkar hagsmuni og
því full ástæða til að fylgjast náið með og hafa áhrif á störf nefnda innan TC 227, bæði hvað varðar
malbiksstaðla og klæðingarstaðla.