Almenn verkefni 2022

Heiti verkefnis : 

ROADEX, samvinnuvettvangur vegagerða í norður Evrópu

Verkefnastjóri : 

 

Stutt lýsing á verkefninu:

 

Roadex verkefnið er tæknilegur samvinnuvettvangur vegagerða í norður Evrópu sem hefur það að markmiði að deila upplýsingum, þekkingu og rannsóknum á umferðarminni eða fáförnum vegum. Verkefnið hófst árið 1998 sem ROADEX I, síðan kom meginverkefnið ROADEX II, ROADEX III þar sem verkefnið var tekið saman og nánari úrvinnsla framkvæmd og síðast ROADEX IV, en þar var þekking og tækni verkefnisins innleidd.

Í framhaldinu var haldið áfram með verkefnið sem ROADEX Network, en það miðar að því að halda áfram samvinnu aðildarlanda og annara sem hafa áhuga. Markmið er að skoða allt sem viðkemur umferðarminni vegum, viðhalda þekkingu, stuðla að og styrkja rannsóknir og setja fram leiðbeiningar og gögn.

ROADEX hópurinn samanstendur af eftirtöldum aðilum:

  • The Swedish Transport Administration
  • North Region Swedish Forest Agency
  • Centre fro Exonomic Devlopment, Transport and Environmental, Finnlandi
  • Finnish Transport Agency
  • The Icelandic Road and Coastal Administration
  • Norwegian Public Roads Administration, Northen Region
  • The Highland Council, Skotland
  • The Forestry Commission Scotland
  • Transport Scotland
  • The Western Isles Council „Comhairle Nan Eilean Siar“, Scotland
  • Department of Transport, Tourism & Sport, Írlandi
  • Department of Agriculture, Fodd and the Marine, Írlandi
  • Road Management Office (RMO) Ireland
  • Roadscanners Oy, Finnlandi

Ávinningur ROADEX samstarfsins er meðal annars:

  • Samstarfsaðilar geta haft áhrif, komið með hugmyndir, hafið og fylgt eftir nýjum rannsóknum á fáförnum vegum.
  • Samstarfsaðilar geta hjálpað hver öðrum að innleiða ROADEX tækni og aðferðir.
  • Samstarfsaðilar hafa greiðan aðgang að sérfræðiþekkingu, bæði í gegnum skrifstofu ROADEX og í gegnum aðra samstarfsaðila.
  • Samstarfsaðilar geta miðlað og rætt reynslu af innleiðingu mismunandi ROADEX lausna.
  • Ytri fjármögnun (EU) verður aðgengilegri þar sem samstarf er þegar hafið.

Frekari upplýsingar má finna á https://www.roadex.org/.

Tilgangur og markmið:

 

Helsta markmið verkefnisins er að þróa nýjar og gagnvirkar aðferðir við ástandsstjórnun á fáförnum vegum sem nær að sameina þarfir staðbundins iðnaðar, samfélags og vegagerða á norðurslóðum. ROADEX er ætlað að viðhalda heimasíðu verkefnisins, þróa verkefnin áfram, vera vakandi fyrir nýjum verkefnum og gera kynningarefni sem nýtist fagaðilum og til kennslu. Þannig eru stöðugt að bætast við ný verkefni og nýjar hugmyndir að koma fram.

Markmið ROADEX verkefnisins eru:

  • Að vera vettvangur fyrir samvinnu vegyfirvalda, háskóla og annarra hagsmunaaðila sem hafa hagsmuni af stjórnun og viðhaldi umferðarminni eða fáfarinna vega.
  • Að sjá um ROADEX arfleiðina, viðhalda þekkingu og efni sem var gert í fyrri verkefnum.
  • Að auka skilvirkni og sjálfbærni í viðhaldsstjórnun og uppbyggingu umferðarminni vega.
  • Að bæta gæði viðhalds og nýbygginga.
  • Að deila bestu starfsháttum á milli samstarfsaðila.
  • Að innleiða og prófa nýjar lausnir í aðilalöndum verkefnisins.
  • Að fylgja eftir notkun á þekkingu ROADEX.
  • Að vera vettvangur fyrir nýjar lausnir og innleiðingu þeirra.
  • Að skipuleggja vinnustofur og fundi þar sem áhersla er lögð á umferðarminni vegi.
  • Að fá utanaðkomandi fjármagn til rannsókna og innleiðingar á verkefnum í ROADEX þekkingarbankann og stuðla að frekari samvinnu.