Almenn verkefni 2022
Almenn verkefni 2022
Heiti verkefnis : | Öryggissvæði í þéttbýli | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Öryggissvæði, eru meðfram vegum og innan þeirra eiga ekki að vera hættulegar hindranir eins og tré sem geta valdið alvarlegum áverkum ef ekið er á þau á. Í núverandi Veghönnunarreglum Vegagerðarinnar er hins vegar ekki gerður greinamunur á öryggissvæði vegar í þéttbýli og dreifbýli. Tilgangur verkefnisins er að skoða hvaða reglur og leiðbeiningar eru í gildi í öðrum leiðbeiningum um öryggissvæði þéttbýli, sem og að skoða rannsóknir tengda efninu, með sérstaka áherslu á öryggi virkra vegfarenda. Slíkar rannsóknir falla vel að hlutverki Vegagerðarinnar um að stuðla að öruggum samgöngum. | ||
Tilgangur og markmið: | ||
Tilgangur verkefnisins er að skoða öryggissvæði vega í þéttbýli. Velt verður upp spurningum hvaða reglur gilda í erlendum handbókum og skoðaðar rannsóknir þar sem öryggissvæði vega hefur verið skoðað í þéttbýli, og þá með sérstaka áherslu á öryggi, heilsu og gönguvænleika „walkability“ virkra vegfarenda. |