Almenn verkefni 2022
Almenn verkefni 2022
Heiti verkefnis : | Ástandsskoðun sprautusteypu í jarðgöngum með tilliti til þykktar og væntanlegs líftíma | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Verkefnið felur í sér að kanna ástand sprautusteypu í íslenskum veggöngum með tilliti til aldurs, hrörnunar (öldrunar) og þykktar. Valdir verða staðir til sýnatöku veggöngum, sem voru tekin í notkun á mismunandi tíma á um 30 ára tímabili. Sýnatökustaðir verða valdir út frá jarðfræðilegum aðstæðum í göngum og áætlaðri þykkt sprautusteypunnar á hverjum stað. Einnig verður skoðað hvar sýni hafa verið tekin áður og metið sérstaklega hvort æskilegt sé að taka sýni á ný á sömu slóðum til samanburðar við tilsvarandi rannsóknir, sem gerðar voru árin 2003-2005. Niðurstöður rannsóknar munu hafa áhrif til lækkunar á kostnaði við gerð næstu vegganga og hafa umhverfislegan ávinning til lækkunar á kolefnisspori ef niðurstöður gefa að óhætt verður að minnka magn sprautusteypu til bergstyrkinga, frá því sem lagt er til í norska veggangastaðlinum, án þess að tefla líftíma og langtímaöryggi í hættu. | ||
Tilgangur og markmið: | ||
Tilgangur verkefnisins er að ástandskanna hrörnun eða „öldrun“ sprautusteypu við aðstæður í íslenskum göngum og með því reyna að áætla líftíma sprautusteypunnar miðað við þykkt ásprautaðs lags. Markmið rannsóknarinnar er að betrumbæta hönnunarforsendur við val á þykkt ásprautaðrar steypu við sæmilegar til góðar jarðgangaaðstæður í nýjum göngum. Kannað verður við bæði þurrar og votar aðstæður og í göngum með mismunandi umferðarþunga (mengun í göngum). |